Já! Þetta er að gerast! Ég hef skráð mig í meistaramánuð og nú skal tekið á því.
Ég ætla ekki að vera með neinar hrikalegar öfgar en ég hef nú þegar framlengt líkamsræktarkortið mitt í Hreyfingu um eitt ár og fékk með því 12 vikna áskorun með einkaþjálfara, mælingum og allskonar sniðugu!
Ég mun ekki innbyrða áfengi í október en það þýðir samt ekki að það sé bannað að bjóða mér í partý!
Ég ætla að reyna að vakna fyrr og mæta fyrr í vinnu og klára þar af leiðandi fyrr!
Ég ætla að drekka a.m.k. 2 lítra af vatni á dag!
Ég ætla bara að leyfa mér gos 1x í viku!
Ég ætla að borða morgunmat eigi seinna en kl 10 alla daga!
Ég ætla að borða hollari mat!
Ég ætla eingöngu að leyfa mér örlítið sælgæti á laugardögum!
Ég ætla að vera meistari!
No comments:
Post a Comment